Royal B
Hampton Silver Fox Fur Vest | Royal B
Hampton Silver Fox Fur Vest | Royal B
Ef valið er að sækja er opið á vinnustofu á þriðjudögum og fimmtudögum milli 15:00 og 18:00
Tókst ekki að hlaða upplýsingum til að sækja
HAMPTON | ROYAL B
Exclusive Design by Royal B
Hampton er glæsilegt loðvesti úr ekta silfurref, sérhannað af Royal B.
Feldurinn og fallegir náttúrulegir litatónar gefa vestinu einstakt yfirbragð. Hampton er áberandi og fáguð flík sem sameinar tímalausan lúxus og nútímalegan stíl.
Fullkomið yfir einfaldan topp eða prjónapeysu, við gallabuxur eða fínni buxur. Flík sem setur svip á heildarútlitið.
Upplýsingar um vöruna
-
Sérhannað af Royal B
-
Efni: Ekta silfurrefur (Silver Fox)
-
Náttúrulegir dökkir og silfraðir litatónar
-
Mjúk feldáferð
-
Ermalaust snið
Umhirða
Mælt er með faglegri hreinsun hjá aðila sem sérhæfir sig í náttúrulegum feldum. Geymið á breiðu herðatré á þurrum og vel loftræstum stað, fjarri beinu sólarljósi og hitagjöfum.
