Þjónustuskilmálar
Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk verndi persónulegar upplýsingar. Við höfum tekið upp sérstakar reglur og skilmála varðandi friðhelgi sem setur okkur mörvarðandi söfnun, geymslu og notkun á þeim upplýsingum sem þú gefur okkur.
Við birtum upplýsingarnar hér að neðan til að gestir okkar á vefnum séu meðvitaðir um fyrrnefndar reglur og skilmála. Með því að heimsækja www.centraliceland.is samþykkirðu og viðurkennir þær aðferðir sem lýst er í þessum texta.
Reglur varðandi friðhelgi
Ef þú ert undir 16 ára aldri förum við fram á að þú upplýsir foreldra eða forráðamann um reglur og skilmála Centraltískuhús ehf og að þú fáir samþykki þeirra áður en þú skráir þig í vefversluninni eða pantar vörur.
Hafðu í huga skilmála og reglur þegar þú setur inn persónulegar upplýsingar.
Persónulegar upplýsingar sem við fáum frá þér
Með því að nota netverslun Central Iceland samþykkir þú heimild á vinnslu og skráningu á persónuupplýsingunum þínum.
Þegar þú skráir þig inn á CentralIceland.is söfnum við upplýsingum eins og nafn þitt, búsetuland, símanúmer, netfang, kennitölu og heimilisfang. Með því að skrá þig heimilar þú slíka söfnun upplýsinga í markaðslegum tilgangi.
Ef þú ert ekki með aðgang hjá okkur og skráir þig inn sem "gestur" munum við safna sömu upplýsingum og koma fram hér að ofan en einungis svo hægt sé að klára pöntunina.
Þegar þú pantar vöru í vefverslun Central Iceland eru kreditkortaupplýsingar þínar aðeins vistaðar á meðan viðskiptin fara fram. Rapyd geymir kortaupplýsingar þínar í öruggum kerfum sínum, en ekki á greiðslusíðunni sjálfri.
Um leið og pöntunin er staðfest og þú færð staðfestinguna í hendur verður öllum upplýsingum um kortið eytt úr kerfinu. Kortaupplýsingar þínar eru öruggar á meðan ferlinu stendur. Hið sama gildir hvort sem þú ert skráður notandi eða ekki.
Fyrir frekari upplýsingar um öryggi greiðslu þinnar með aðstoð Rapyd, vísum við til heimasíðu þeirra.
Hvað með vafrakökur (cookies)?
"Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforritið þitt geymir í tölvunni þinni að beiðni netþjóna. Central Iceland notar þessar upplýsingar til að bera kennsl á notandann, til vita hversu oft þú heimsækir heimasíðuna, hvað þú setur í körfuna þína, hvernig fyrri pantanir þínar voru og til að kynna þér fyrir vörum sem gætu vakið áhuga þinn.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytendans og til að bæta upplifun á síðunni.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að notandinn þurfi að samþykkja hvert tilvik. Þótt þú kjósir að leyfa ekki vafrakökur geturðu samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu okkar, þar á meðal verslunarkerfið.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á www.AboutCookies.org. Möguleikar þínir á notkun vefsíðu Central Iceland gætu takmarkast við slíkar breytingar.
Uppfært: 5/11/2026